Jólakonfekt 2
(Margrét Ásgeirsdóttir)

Möndluskellur

Heilar möndlur
Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Skerið möndlurnar niður í nálar. Blandið út í sem minnst magn af bræddu súkkulaði en nægilegt til að hylja möndlurnar. Setjið skellur í konfektform með teskeið og látið storkna.


Kanil-kókoskúlur

200 g þurrkaðir papaya- og ananas bitar
1 dl kókosmjöl
6-8 Nóa kókosbitar
100 g Suðusúkkulaði, brytjað
100 g pekanhnetur
2-3 msk. mjúkt smjör
1/2-1 tsk. kanill
Dökkur ópal hjúpur

Setjið allt í matvinnsluvél og hrærið þar til allt verður að þykkum massa.
Mótið kúlur úr massanum og hjúpið þær með hjúpnum.
Stráið kókosmjöli yfir. Geymið í lokuðu íláti.