Jólakonfekt
(Margrét Ásgeirsdóttir)

Söndru döðlur

Döðlur
Marsipan
Núggat
Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Opnið döðlurnar, takið steininn úr og setjið marsipan og núggat inn í staðin. Hjúpið með súkkulaði.


Regnbogakúlur

Marsipan
Núggat
Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Skerið núggatið í litla teninga. Fletjið út bita af marsipaninu milli fingranna, vefjið utanum núggatið og mótið kúlu. Hjúpið með súkkulaði. Til skemmtunar fyrir börnin má nota marsipan í nokkrum litum.


Kobbakúlur

100 gr núggat
35 gr valhnetur
100 gr konfektmarsipan
50 gr flórsykur
50 gr rúsínur
100 gr rjómasúkkulaði
Dökkur Ópal súkkulaðihjúpur

Setjið allt nema hjúpinn í matvinnsluvél og hakkið mjög vel saman. Mótið kúlur og kælið í 10-15 mín. Hjúpið og veltið upp úr valhnetumylsnu.