Jólabakstur
(Inger Rós Jónsdóttir)

konfekt
1 b furuhnetur
250 g rúsínur
2 msk hreint kakóduft

allt sett í matvinnsluvél & blandað vel saman, mótið litlar konfektkúlur sem er smart að velta upp úr smá hreinu kakódufti, geymist best í ísskáp eða frysti

appelsínukonfekt
1 b kasjúhnetur
1 b kókosmjöl
250 g döðlur
1/2 tsk vanilluduft 1 msk rifið appelsínuhýði (lífrænt)
smá sjávarsalt & nokkur korn af cayenne pipar til að velta uppúr:
1/2 b kókosmjöl + 2 tsk appelsínuhýði sem er sett í matvinnsluvél & malað

setjið kasjúhnetur & kókosmjöl í matvinnsluvél & malið fínt, bætið restinni af uppskriftinni útí & blandið vel. búið til konfektkúlur sem þið veltið upp úr appelsínukókosmjölinu. geymist best í ísskáp eða frysti

jólasmákökur úr spelti
1/2 b kókosmjöl
1/2 b malaðar möndlur
1/2 b kókosolía
1/2 b agavesýróp
1 tsk vanilluduft
2 b spelt, má nota fínt eða gróft eða 50/50
1/2 tsk sjávarsalt
stillið ofninn á 200°C

Setjið bökunarpappír í ofnskúffu & möndlur & kökosmjöl þar á & inn í ofn & þurrristið í 2-3 mín.
Látið kókosolíu krukkuna standa í heitu vatni í smá stund svo hún mýkist, setjið svo kókosolíuna + agavesýróp í matvinnsluvél & látið þeytast vel saman í Nokkrar mín, bætið þá útí vanilludufti + spelti + salti & síðast varlega kókosmjöli & möndlum.
Setjið í kæli í um 1/2 klst - mótið svo litlar kúlur sem þið fletjið út með gaffli & setjið á bökunarpappír & bakið við 180°C í 10-12 mín.