Skyramisú
(Hrönn Bjarnadóttir)

4 matarlímsblöð
3-4 msk vatn
200 ml. kalt kaffi, helst espresso
2 msk sjerrí, sætt, eða Tia Maria
15-20 fingurkexkökur, ladyfingers
600 g skyr, helst KEA
100 g sykur
2 egg
Rjómi ef vill

Matarlímið lagt í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur og síðan leyst upp í 3-4 msk sjóðandi vatni.
Kaffinu hellt á disk, ásamt 1msk af líkjörnum og fingurkexkökunum velt snöggt upp úr því; þær eiga ekki að verða gegnsósa
Raðað í víða skál með flötum botni eða glerfat.
Skyrið hrært með sykri, eggjum, afganginum af líkjörnum og e.t.v. dálítilli rjómaskvettu og smakkað til. Bræddu matarlíminu er svo hrært saman við og blöndunni hellt yfir kexið ( ef formið er lítið má hafa 2 lög af hvoru)
Kælið í nokkrar klukkustundir

Ofan á
Annað hvort:
250 jarðaber eða bláber
Eða:
2-3 msk kakóduft eða 50 g rifið súkkulaði