Mexíkósk kjúklingasúpa
(Inger Rós Jónsdóttir)
Efni
3 - 5 Laukar
2 - 3 Hvítlauksrif
1 chilipipar rauður
5 dl Kjúklingasoð ( teningur og vatn)
5 dl Kjötsoð (teningur og vatn)
1 tsk Koriander eða cumin
1 tsk Chili krydd
1 tsk Cayenne Pipar
2 tsk Worchester sósa
4 dósir Niðursoðnir tómatar
4 - 6 Kjúklingabringur
Mariachi hot pepper sauce eftir smekk
Procedure
Laukur og hvítlaukur eru steiktir þar til þeir eru orðnir gullinbrúnir og svo er restin sett saman við nema kjúklingurinn. Súpan er látin malla svolítið og síðan er kjúklingurinn steiktur og bætt í rétt áður en súpan er borðuð.
Þetta er borið fram með sýrðum rjóma, guacamole,nachos flögum og rifnum osti og best er að setja þetta allt í súpuna hjá sér þegar maður borðar hana. Gott er að hafa nýbakað brauð með
Þetta er fyrir svona 6 - 8
Og munið að krydd er afstætt