21. maí 2009

Jæja nú erum við flutt til Kanada og fílum okkur svakalega vel í sólinni og sumarylnum. Voða gaman líka að vera með garð fyrir börnin að leika sér í. Við búum í voðalega sætu hverfi þar sem eru ekkert nema einbýlishús með grónum görðum fullum af blómum. Mamma verður hjá okkur í sumar til að hjálpa mér með börnin meðan ég er að finna mér vinnu og svoleiðis og hún á ekki orð yfir hvað garðarnir og húsin eru sæt. Knús frá Kanada!
21. maí 2009

Jæja nú erum við flutt til Kanada og fílum okkur svakalega vel í sólinni og sumarylnum. Voða gaman líka að vera með garð fyrir börnin að leika sér í. Við búum í voðalega sætu hverfi þar sem eru ekkert nema einbýlishús með grónum görðum fullum af blómum. Mamma verður hjá okkur í sumar til að hjálpa mér með börnin meðan ég er að finna mér vinnu og svoleiðis og hún á ekki orð yfir hvað garðarnir og húsin eru sæt. Knús frá Kanada!

23. júlí 2008
Bryndís sunddrottning
http://www.barnanet.is/latrasel7
Hæhæ Magga og til hamingju með skvísuna.Frábært hvað allt gekk vel. Kveðja Bryndís og Hanna María

23. júlí 2008
Anna og Óskar
Til lukku með prinsessuna :D Hlökkum til að hitta ykkur og sjá skvísuna :):) Kær kveðja, Anna Björk og co

23. júlí 2008
Vigdís
http://vigdishlif.com
Til hamingju með litlu prinsessuna! Ég hlakka til að sja ykkur öll! Kveðja Vigdís

22. júlí 2008
Linda úr bollusullinu. :)
http://barnaland.is/barn/34267
Innilega til hamingju neð fallegu stúlkuna ykkar. Gangi ykkur vel! :) Kær kveðja Linda

22. júlí 2008
Magga móða
Velkomin í heiminn elsku litla frænka og Brynjar til hamingju með litlu systur. Hlakka svo til að fá að sjá hana :) Knús úr Suðurtúninu og frá litlu frænku á vöku

21. júlí 2008
Dóra G.
Varð bara að skrifa aftur til að segja hvað mér finnst litla snúllan sæt og fín og stór. Sýnist hún vera með spékoppa eins og brósi, það er það sætasta af öllu sætu :) Hafið það rosa gott!

18. júlí 2008
Sigrún Þöll
http://www.barbietec.com
Innilegar hamingjuóskir! Hlakka til að fá að sjá myndir! það væri nú gaman að við myndum hittast við tækifæri þegar þú ert komin á ról með ungviðin okkar :)

18. júlí 2008
Hófí
Innilega til hamingju með litlu (stóru!) dömuna!

17. júlí 2008
Dóra G
Innilega til hamingju með stelpuna. Frábært að allt gekk vel þrátt fyrir speedo fæðingu. Hafið það rosalega gott og hlakka til að sjá myndir af prinsessunni og stoltum bróður!

17. júlí 2008
Margrét Backman og litli stubbur
Hjartanlegar hamingjuóskir með litlu prinsessuna. Gott að allt gekk vel. Hlakka til að sjá myndir af henni og að hittast í mömmuhittingi. Knús

17. júlí 2008
Þórunn
Hjartanlega til hamingju með dömuna Kveðja Þórunn og Rakel Sara

17. júlí 2008
Eyrún Lóa, Siggi, Dagrún María og Ingvar Alexander
Innilega til hamingju með stúlkuna :) Knús

17. júlí 2008
Rannveig
http://www.rannsa.blogspot.com
Innilega til hamingju með prinsessuna :) Mikið er gott að hún skuli vera loksins komin í heiminn og ég hlakka til að fylgjast með ykkur, risaknús Rannveig

14. júlí 2008
Inger Rós
Glæsileg síðan þín, heimilisleg og flott. 1 dagur eftrir í biðinni :) Kv. Inger Rós

13. júlí 2008
SigrúnM
Hæ hæ :) Frábært að það sé komin gestabók, flott nýja síðan! Vonandi fer fæðingin nú bara i gang af sjálfu sér eftir þessa læknisheimsókn, annars frábært að þú sért komin með dagsetningu fyrir gagnsetninguna. Bíð spennt eftir meiri fréttum :) knús Sigrún

13. júlí 2008
Rannveig Magnúsdóttir
http://www.rannsa.blogspot.com
Haha takk Magga mín, finnst alveg nauðsynlegt að hægt sé að hrósa fallegu síðunni þinni :) Ofsalega flott hjá þér, ég hlakka til að fylgjast með og gangi þér rosa vel á þriðjudaginn ;) hugsa til þín í fluginu út, risaknús þín Rannveig

12. júlí 2008
Magga
http://www.nailmunch.com
Þessi gestabók er sérstaklega gerð fyrir Rannveigu vinkonu, takk fyrir ábendinguna :).